Ađalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Teljari

Könnun

Veist ţú hvar Calgary er?

Tenglar

Gagnasafn

teljari 2





sma updateSólveig Rós Másdóttir

Jaeja, nu hef eg ekki bloggad i bili...

annars er ekki mikid ad fretta. Er i Calgary med Dani og tengdo, og er buin ad vera sidan 21 des. Vid fljugum aftur til Victoria annan jan og skolinn byrjar strax daginn eftir. Profin gengu bara agaetlega, held eg, allavega eru einkunnirnar tvaer sem eg er buin ad fa til baka haerri en eg bjost vid! En er mjog otolinmod ad bida eftir hinum tremur... hvad a tad ad tyda ad kennarar fari i jolafri lika??

(afsakid, vetrarfri, eda hatidir. Ma ekki segja jola neitt herna. Madur verdur ad vera PC, sko.To tad geri tad ekki allir, en ta lenda teir i vandraedum med vinkonu mina sem er gydingur...)

Vid erum bunar ad vera voda latar herna, bara sofa ut og horfa a dvd sem eg fekk i jolagjof. Tessi borg er miklu staerri en Victoria, er ordin tridja eda fjorda staersta i Kanada, og tad er endalaus mikil umferd og mallin alveg ad springa af folki, serstaklega rett fyrir jol.

Eg eyddi miklum tima i ad reyna ad finna mer coop vinnu fyrir januar og tokst tad loksins! Og for svo og sotti um atvinnuleyfi ... en var svo mikill klaufi ad gera tad svona seint ad eg mun orugglega ekki fa tad fyrr en i februar eda mars. Svo eg held ad eg haetti vid ad vinna coop i vor... heldur fari bara aftur i skolann. Eg er eiginlega bara frekar satt vid tad.

Annars eru frettir af brudkaupsmidum... en taer verda leyndo adeins lengur, tangad til allt er komid a hreint.

Gledileg jol og farsaelt komandi ar allir saman!

vesenSólveig Rós Másdóttir

Tímar eru búnir, verkefnið frá því síðast er búið (og var alveg hræðilegt), fyrsta prófið búið (gekk bara þrælvel!) og þrjú próf eftir. Það erfiðasta á föstudaginn, og ætti ég að vera að læra eins og vitleysingur, síðustu tvö bæði á mánudaginn.

En hvað eyði ég tímanum í? Jú, að fylla út eyðublöð, að skanna þau inn, að fara á fundi og skrifstofur, fá fleiri eyðublöð, og reyna að redda hlutum á Íslandi þegar ég er 8 tímabeltum fjarri.

Ég fékk semsagt coop vinnu í janúar woohoo! Coop er sko svona prógramm sem er hægt að bæta ofan á venjulega b.a. gráðu þar sem maður vinnur í fjórar annir á hinum ýmsu stöðum við eitthvað sem tengist náminu... voðalega sniðugt ef maður vill svo fara út á vinnumarkaðinn. En erfitt að fá góðar vinnur ef maður hefur litla reynslu eða er úgglendingur... og mun þá væntanlega útskrifast ári seinna. Og þar sem ég er úgglendingur þá þarf ég auðvitað að hafa sérstakt atvinnuleyfi.

Ég er semsagt með námsleyfi, sem leyfir mér að vera í landinum þangað til ég er búin að útskrifast. Ég sótti svo líka um atvinnuleyfi sem leyfir mér að vinna hérna í sumarfríum og í hlutastarfi með skólanum. En svo þarf þriðja leyfið til að geta unnið í coop, þar sem það myndi vera full vinna. Sem betur fer er ekki mikið mál að fá það leyfi þegar maður er kominn með námsleyfi til að byrja með. Og allt þetta þarf svo að halda mér uppi einhvernveginn þangað til að ég fæ landvistarleyfi, sem mun (vonandi) gerast þegar ég og Dani erum búnar að giftast, og sækja um, en það mun taka sirka ár.

Svo ég er að drífa mig í að fá þetta coop atvinnuleyfi svo ég geti nú byrjað að vinna eftir mánuð... þó það stefni nú varla í að það verði tilbúið þar sem það er reiknað með 6-8 vikum ef allt gengur vel. En ekki nóg með það! Út af því að ég ætla að gera coop, þá mun ég verða lengur í skólanum, svo ég þarf líka að framlengja námsleyfið mitt sem þessa stundina rennur út næsta sumar.

Svo að ég þarf að fylla út eyðublöð á eyðublöð ofan, skanna þau, faxa þau, ljósrita þau, póstleggja þau, passa að allt sé tilbúið... og auðvitað er helmingurinn af því sem ég þarf á einhverjum skrifstofum á Íslandi svo ég þarf að senda tölvupóst, hringja, senda sms, og svo auðvitað borga heilan hellings pening. Og klára þetta allt sem fyrst.

Mig sem langar bara að fara að læra :( Gráta

Ţađ er ekki gaman ađ...Sólveig Rós Másdóttir

... fatta klukkan hálftíu um kvöld að verkefnið sem ég er vel komin á veg með á að vera allt öðruvísi.

Svo ég var að reyna að púsla saman plaggati um mismunandi stillingarkerfi í tónlist þangað til klukkan hálfsjö í morgun, lagði mig í tvo tíma, fór svo upp í skóla og var að klippa og líma þangað til 3 mín áður en tíminn byrjaði.

Talandi um stress... og lélegt verkefni Fýldur mér sem var búið að ganga svo vel hingað til!