Ađalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Teljari

Könnun

Veist ţú hvar Calgary er?

Tenglar

Gagnasafn

teljari 2





Sólveig Rós Másdóttir

Þá er ég komin til landsins. Flugið var frekar ófréttnæmt og gekk bara frekar vel fyrir utan að einhverjum tókst að hella appelsínusafa í hárið á mér. Miklu styttra að fljúga í gegnum Halifax, en svo hjálpaði auðvitað til að fljúga frá Calgary frekar en Victoria...

Annars var vikan mín í Calgary alveg frábær. Nottla best að hitta Dani sem ég var ekki búin að sjá í tvo og hálfan mánuð! Veðrið var mjög heitt sem gat verið frekar óþægilegt þegar maður var að fara að sofa... en mjög fínt þegar var kominn tími til að synda í Lake Sylvan! Sem er mitt á milli Calgary og Edmonton og þar sem föðurfjölskyldan hennar Dani á sumarbústað við vatnið og bát og strönd og alles. Algjör paradís! Og þá er ég búin að hitta mest af föðurfjölskyldunni en þau búa í Edmonton, náði móðurfjölskyldunni um jólin en þau búa í Calgary.

Helginni var semsagt eytt á Lake Sylvan, svo fórum við aftur til Calgary og fórum á lokakvöldið á Stampede! Sem er ef þið hafið ekki heyrt um það The Greatest Outdoor Show On Earth! Ég sá reyndar ekki rodeoið en Dani tók mig á the grand stand show þar sem við horfðum á lokakeppnina í chuckwagon races, en það eru vagnar dregnir af fjórum hestum og með tjaldi strengdu yfir eins og gömlu vagnarnir hjá fólkinu sem nam land hér fyrir einhverjum árum síðan. Mjög spennandi! Þangað til það byrjaði að rigna með þrumum og eldingum og hagléli svo við fórum inn... en það entist sem betur fer ekki lengi og við náðum restinni þegar við fórum aftur út.

Og svo kom the grand stand show! Ég vissi ekki við hverju ég ætti að búast þar sem Dani hélt þessu öllu leyndi frá mér... en það var ekkert smá flott! Risa sýning með söngi og dansi og flottum búningum og sögum og gestum frá Las Vegas og Cirque de Soleil... og endalausum flugeldum og fólki að gera kúnstir á mótorhjóli og ég bara veit ekki hvað.

Svo daginn eftir fórum við til Drumheller sem er tæpa tvo tíma fyrir utan Calgary í svokölluðum Badlands sem minnti mig nú bara smá á Ísland, svei mér þá! við stoppuðum í Horseshoe Canyon sem er víst eins og mini útgáfa af Grand Canyon sem ég hef aldrei séð. En þarna vex ekki mikið en er nóg af grjóti og - wait for it - risaeðlubeinum. The Royal Tyrrell Museum í Drumheller er með riiiisa safn af steingervingum og alls konar dóti frá því að Alberta var fullt af risaeðlum. Frekar merkilegt!

Svo bara aftur til Calgary, þar sem við dunduðum okkur við ýmislegt, kannski helst að segja að ég keypti mér loksins digital myndavél!!! Búin að langa í svoleiðis í fleiri ár en hef aldrei talið það vera nógu hátt á forgangslistanum en núna lét ég bara slá til. Vest samt að ég fékk hana bara rétt áður en ég fór svo ég á nánast engar myndir úr ferðinni... Bæti bara upp fyrir það hérna heima ;)

Íslandsferđ...Sólveig Rós Másdóttir

Ég semsagt heimsæki Frón hvorki meira né minna en rétt bráðum! 19 júlí til 2 ágúst! Og 13-19 júlí mun ég eyða í Calgary með kærustunni! Ég er ekkert smá spennt!! Hlæjandi