solveigros.bloggar.is
Tessi borg er alveg otruleg.Sólveig Rós Másdóttir
Rafmagnid okkar for i gaerkveldi. Tegar eg var ad skrifa ritgerd sem atti ad skila i morgun. Rafmagnid var ekki ennta komid a tegar eg for i skolann i morgun. Og tad var ekki bara husid mitt, heldur allt hverfid greinilega, og orugglega ekki bara mitt hverfi. Einnig voru allir straetoar otrulega seinir, sem betur fer fekk eg far hja vini minum sem var svo vaenn ad stoppa hja straetoskylinu og bjoda folki far i skolann. Fullt af budum og adrir stadir eru lokadir i dag.Tad maetti halda ad vid hefdum fengid gaddfredna blindhrid... en nei. Tad eru sirka 20-30cm af snjo a jordinni, og varla neinn vindur. Tad er alveg otrulegt ad hugsa til tess ad eg er i Kanada...
En allavega fekk eg ad horfa a hluta af Utlaganum i norraen godafraeditima i morgun! Tad var nu gaman. Einnig var otrulega gaman ad fara ut i snjokast i gaer, og ad renna ser a plastpoka nidur gotuna.
Best ad halda afram ad skrifa ritgerd sem atti ad skila i morgun!
Sólveig Rós Másdóttir
Oooooooooooooooooog heimurinn er góður við mig.Það snjóaði svo mikið að skólanum mínum var LOKAÐ. Enginn strætó í dag. Og engin ritgerðarskil í dag.
JEI.
SNJÓR!!!Sólveig Rós Másdóttir
Ekki húsið mitt, en borgin mín samt. Það snjóar sko aldrei hérna. Nú krossum við öll puttana og vonum að það verði ennþá snjór á morgun... því það þýðir örugglega að það verður enginn skóli á morgun :D :D :D :D :D Og ég fæ sjálfkrafa frest á ritgerðinni minni :D :D :D :D :DBloggar komið aftur í gang... og ég fæ munnræpuSólveig Rós Másdóttir
Skóliskóliskóliritgerðirritgerðirprófprófpróf.Nokkurnveginn það sem lífið snýst um núna. 12 bls ritgerdð á mánudaginn sem gengur svona lala (búin að eyða endalausum tíma í hana en finnst eins og ég hef ekki áorkað neinu) og örugglega næstmikilvægasta prófið alla önnina sama dag (ég VERÐ að fá góða einkunn á þessu hagfræðiprófi, annars get ég sagt bless við allar tilraunir til að fá bærilega einkunn í þessum áfanga, er löngu búin að gefast upp á að fá allt í lagi). Sem betur fer eru allar mínar ritgerðir og próf dreifð á mjög hentugan máta og ég er búin að vera frekar dugleg yfir önnina svo ég held ég hafi aldrei verið jafn lítið stressuð fyrir lokapróf og núna. (Fyrir utan hagfræði.) Ath: Það eru lokapróf, ritgerðirnar mínar eru alveg jafn erfiðar. Sérstaklega þessi. Aaaaaaaah. Og ekki bætir úr skák að þær fáu bækur í bókasafninu sem eru yngri en 20 ára eru allar í útláni, og ekki til mín. Recall recall recall!
Annars hef ég verið að eyða tímanum í sjúkraþjálfun, hlusta á Emily Haines og í miðaldaklúbbi. Já, þið lásuð rétt - Sarah sem ég bý með er á fullu í the SCA þar sem fólk klæðir sig upp í miðaldabúningum og skemmtir sér svo við að fara í brynju og lemja hvert annað með teipuðum trésverðum. Er nokkuð viss um að bakið á mér er ekkert allt of æst til að gera það... svo ég læt aðra um það. Ég hef farið með nokkrum sinnum og fékk að skjóta af boga! Það fannst mér mjög gaman. Kærastan er aftur á móti orðin gersamlega gagntekin. Þar sem hún fær ekki lengur að spila field hockey á hverjum degi (nationals búið, þær lentu í öðru sæti... var þar mikil sorg) þá er ekkert betra en að lemja gamla kalla í hausinn með sverði, greinilega! Og að sjálfsögðu er hún ótrúlega góð, og allir eru handvissir um að hún verði langbest og geti orðið riddari á stuttum tíma því hún er svo sterk og hún er svo fljót og hún er með svo mikið þol og hún er ekki hrædd við að reyna og láta lemja sig og svo framvegis og svo framvegis. Greinilega hefur hún fengið einum of marga field hockey bolta í hausinn í gegnum tíðina... Ég skil ekki íþróttafólk. En gott að hún skemmtir sér!
Annars er Emily Haines algert æði.
Veðrið hérna er annars búið að vera frekar íslandslegt. Frysti yfirnótt nokkrum sinnum fyrir viku, annars er búið að vera vindur og rigning! Jafnvel svo mikið að einstaka sinnum jaðrar það við að vera rok! Mér finnst það æðislegt. Allir aðrir auðvitað í sjokki yfir hversu hræðilegt veðrið er, ferjuferðum er frestað og rafmagnið fer af. En það er víst verra á öðrum stöðum þar sem tré rifna upp með rótum og það flæðir inn í kjallara... mér finnst það samt vera ósköp veimiltítulegt. En það er bara ég.
Núna þarf ég að læra... þarf að fara í skólann á eftir! Í fyrsta skipti frá því á föstudaginn! Reading break er næstum búið, helmingurinn af kúrsunum mínum gaf okkur frí alla vikuna en hinn helmingurinn vill hafa tíma í dag og á morgun, svo ætli ég verði ekki að láta sjá mig. Svo er kóræfing í kvöld, því við höldum þessa frábæru tónleika á laugardaginn. Allir að láta sjá sig, ég lofa skemmtun!
