solveigros.bloggar.is
Hallo hallo hallo halloween...Sólveig Rós Másdóttir
Eins og maðurinn (Lupen Crook) sagði.Hrekkjavaka á þriðjudaginn!! Nágrannarnir með stóran uppblásinn draug í garðinum og köngulóarvefir og grasker út um allan bæ. Hefði getað farið á Halloween djamm í gær en geri það frekar á þriðjudaginn, í staðinn dunduðum við Dani og Krystee okkur við að skera út grasker! Það var ótrúlega gaman, graskerið mitt er núna með andlit af litlum sætum púka, Dani gerði uglu og Krystee könguló. Það eru nefnilega til svona rosalega sniðugir pumpkin carving kits í búðinni okkar og stór falleg grasker á aðeins tvo dollara! Kannski ég geri meira á morgun...
... því núna ætti ég að vera að læra :( Hagfræðipróf á morgun og ég er svo innilega ekki undirbúin. Ekki gott plan, þar sem mér gekk mjög illa á því fyrsta og ætlaði svoleiðis að eyða heilli viku í að læra fyrir þetta próf, en það var annað próf á föstudaginn og sagan fer eftir því. Og að sjálfsögðu notaði ég tækifærið til að forðast lærdóm og á núna tandurhreint eldhús, baðherbergi og svefnherbergi...
Þetta próf þýðir aftur á móti að ég fór ekki að sjá Screaming Masterpiece með Íslendingafélaginu í Victoria á föstudagskvöldið, og ekki heldur á Pride UVic kaffihús þó ég væri hálf búin að lofa nýrri vinkonu minni að fara með hana þangað (geri það næst í staðinn) og ekki heldur á míní tónleika í gær hjá vini mínum, og sendi kærustuna eina með Sarah og Fletcher á slagsmálaæfingu með SCA, sem er einhver miðaldaklúbbur þau tvö eru á fullu í. Ég fór reyndar með þeim fyrir viku síðan, klædd upp eins og norsk hefðarmær frá tíundu öld að horfa á fólk berjast... það var rosalega gaman ;) Enda var kærastan svo hrifin að núna ætlar hún að læra líka. Af hverju þarf allt að gerast á sama tíma og akkúrat þegar ég þarf að læra?? Ég bara spyr.
Speaking of which... hagfræðin kallar! Í öðrum fréttum fékk ég þá skyndilegu hugdettu að breyta minornum mínum. Það er örugglega ekki góð hugmynd, ef ég vil útskrifast á skikkanlegum tíma og mun núna taka við tími mikilla pælinga og skipulagningar og óákveðni og óöryggis... Svona er að vera skólahóra og vilja læra allt. Ekki auðvelt líf, skal ég segja ykkur. Nú fer ég að læra. Eða í sturtu. Eða að taka til. Við sjáum til ;)
Ég hef gaman af ţví ađ tala (did you notice?)Sólveig Rós Másdóttir
Ég er ótrúlega afbrýðisöm akkúrat núna. Airwaves að byrja á Íslandi og ég er ekki þar!!! Ég hef eiginlega aldrei farið á Airwaves, sem mér finnst vera alveg hundfúlt. Það eru nefnilega svona margar massagóðar hljómsveitir að fara að spila. The Go! Team!!! Mig langar SVO að sjá þau life! Mates of State!! Mjög skemmtileg hljómsveit sem ég hlustaði helling á í sumar. Wolf Parade!!! M. góðir og Sally vinkona mín myndi drepa mig ef ég fengi að sjá þá. Og svo auðvitað Metric!!! Sem ég reyndar sá hérna í Victoria fyrir mánuði síðan... engu að síður örugglega sú hljómsveit sem ég hef hlustað á mest af öllu þetta árið. Og margt fleira sem ég man ekki eftir þessa stundina en myndi örugglega hafa ótrúlega gaman af að sjá. En maður fær víst ekki allt... en mæli ég eindregið með því að þeir sem hafa tækifæri á láti sjá sig og skemmti sér fyrir mig!Háskólaliðið mitt er núna efst í deildinni í field hockey, jei! Og kærastan er efst sem markmaður (veit samt ekki hvað það þýðir) jei! En fyrst þau unnu alla leiki um síðustu helgi verða þau hérna um næstu helgi í staðinn fyrir að fara til Vancouver jei! Fara aftur á móti til Vancouver í næstum viku rétt eftir það á nationals... krossum nú fingur og vonum að þær vinni. Eiga alveg hellings sjens á því, liðið hér og Vancouver liðið eru þau allra bestu. Og eftir sem áður, ég hef svosem engan áhuga á íþróttum en maður verður víst að sýna stuðning ;) Enda er field hockey það eina sem maður fær að heyra um daginn út og inn... En þá verður þetta sem betur fer loksins búið.
Ég var farin að hafa alvarlegar áhyggjur af því hvernig ég mun standa mig í hagfræði þessa önnina... hélt t.d. að ég myndi falla á fyrsta kaflaprófi en svo kom í ljós að einkunnin mín var akkúrat meðaltalið svo mér líður miklu betur. (Meðaltalið var bara 5.6, en það er annað mál!) En þar sem bara 2/3 kaflaprófanna gilda þá á ég ennþá sjens í að standa mig vel. Tók þessa líka svakalegu rassíu í hagfræði yfir helgina, fékk yfir 9 í einu verkefni og komst að því að þetta er ekkert mál! Svo nú er ég mun bjartsýnni og bara í ágætu hagfræðiskapi.
Það er baptista kirkja rétt hjá skólanum mínum sem er svosem ekki í frásögur færandi, nema þau hafa þann vana á öll þriðjudagskvöld að elda helling af mat og bjóða gestum og gangandi! Og þar sem það byrjar akkúrat þegar kóræfing er búin þá er hefð fyrir því að marsera þangað og gæða sér á góðgætunum. Svo í dag fékk ég svona líka ágætan ókeypis mat, sem var líka svona þrælgóður. Mun þetta vonandi verða fastur liður í dagskránni!
En svo verð ég að kvarta aðeins... hafið þið tekið eftir því að það er stundum eins og að eitthvað verði miklu verra eftir að það er búið að greina vandamálið? Ég er víst búin að vera með skakka hálsliði í mörg ár án þess að hafa vitað af því, og þegar ég hugsa til baka þá passar það alveg, en ég skellti því bara á vöðvabólgu og lét það ekkert trufla mig neitt sérstaklega mikið. Svo potaði sjúkraþjálfarinn og nuddarinn og það varð miklu betra en það entist ekki lengi... ég hlýt að hafa sofið eitthvað skakkt, því núna er ég svona hrikalega slæm :( get varla hreyft höfuðið og allar snöggar hreyfngar eru no-go. Af hverju gerist þetta núna en ekki fyrir löngu síðan?? Ég bara spyr. Á tíma hjá sjúkraþjálfara á föstudaginn, vonandi getur hún eitthvað lagað þetta ef það skánar ekki af sjálfu sér...
En núna get ég varla frestað því mikið lengur að lesa um stofnun Ísrael... ekki að ég vilji það endilega, langt síðan ég hef verið að læra um jafn áhugavert efni!
