solveigros.bloggar.is
Tessi borg er alveg otruleg.Sólveig Rós Másdóttir
Rafmagnid okkar for i gaerkveldi. Tegar eg var ad skrifa ritgerd sem atti ad skila i morgun. Rafmagnid var ekki ennta komid a tegar eg for i skolann i morgun. Og tad var ekki bara husid mitt, heldur allt hverfid greinilega, og orugglega ekki bara mitt hverfi. Einnig voru allir straetoar otrulega seinir, sem betur fer fekk eg far hja vini minum sem var svo vaenn ad stoppa hja straetoskylinu og bjoda folki far i skolann. Fullt af budum og adrir stadir eru lokadir i dag.Tad maetti halda ad vid hefdum fengid gaddfredna blindhrid... en nei. Tad eru sirka 20-30cm af snjo a jordinni, og varla neinn vindur. Tad er alveg otrulegt ad hugsa til tess ad eg er i Kanada...
En allavega fekk eg ad horfa a hluta af Utlaganum i norraen godafraeditima i morgun! Tad var nu gaman. Einnig var otrulega gaman ad fara ut i snjokast i gaer, og ad renna ser a plastpoka nidur gotuna.
Best ad halda afram ad skrifa ritgerd sem atti ad skila i morgun!
Sólveig Rós Másdóttir
Oooooooooooooooooog heimurinn er góður við mig.Það snjóaði svo mikið að skólanum mínum var LOKAÐ. Enginn strætó í dag. Og engin ritgerðarskil í dag.
JEI.
SNJÓR!!!Sólveig Rós Másdóttir
Ekki húsið mitt, en borgin mín samt. Það snjóar sko aldrei hérna. Nú krossum við öll puttana og vonum að það verði ennþá snjór á morgun... því það þýðir örugglega að það verður enginn skóli á morgun :D :D :D :D :D Og ég fæ sjálfkrafa frest á ritgerðinni minni :D :D :D :D :DBloggar komið aftur í gang... og ég fæ munnræpuSólveig Rós Másdóttir
Skóliskóliskóliritgerðirritgerðirprófprófpróf.Nokkurnveginn það sem lífið snýst um núna. 12 bls ritgerdð á mánudaginn sem gengur svona lala (búin að eyða endalausum tíma í hana en finnst eins og ég hef ekki áorkað neinu) og örugglega næstmikilvægasta prófið alla önnina sama dag (ég VERÐ að fá góða einkunn á þessu hagfræðiprófi, annars get ég sagt bless við allar tilraunir til að fá bærilega einkunn í þessum áfanga, er löngu búin að gefast upp á að fá allt í lagi). Sem betur fer eru allar mínar ritgerðir og próf dreifð á mjög hentugan máta og ég er búin að vera frekar dugleg yfir önnina svo ég held ég hafi aldrei verið jafn lítið stressuð fyrir lokapróf og núna. (Fyrir utan hagfræði.) Ath: Það eru lokapróf, ritgerðirnar mínar eru alveg jafn erfiðar. Sérstaklega þessi. Aaaaaaaah. Og ekki bætir úr skák að þær fáu bækur í bókasafninu sem eru yngri en 20 ára eru allar í útláni, og ekki til mín. Recall recall recall!
Annars hef ég verið að eyða tímanum í sjúkraþjálfun, hlusta á Emily Haines og í miðaldaklúbbi. Já, þið lásuð rétt - Sarah sem ég bý með er á fullu í the SCA þar sem fólk klæðir sig upp í miðaldabúningum og skemmtir sér svo við að fara í brynju og lemja hvert annað með teipuðum trésverðum. Er nokkuð viss um að bakið á mér er ekkert allt of æst til að gera það... svo ég læt aðra um það. Ég hef farið með nokkrum sinnum og fékk að skjóta af boga! Það fannst mér mjög gaman. Kærastan er aftur á móti orðin gersamlega gagntekin. Þar sem hún fær ekki lengur að spila field hockey á hverjum degi (nationals búið, þær lentu í öðru sæti... var þar mikil sorg) þá er ekkert betra en að lemja gamla kalla í hausinn með sverði, greinilega! Og að sjálfsögðu er hún ótrúlega góð, og allir eru handvissir um að hún verði langbest og geti orðið riddari á stuttum tíma því hún er svo sterk og hún er svo fljót og hún er með svo mikið þol og hún er ekki hrædd við að reyna og láta lemja sig og svo framvegis og svo framvegis. Greinilega hefur hún fengið einum of marga field hockey bolta í hausinn í gegnum tíðina... Ég skil ekki íþróttafólk. En gott að hún skemmtir sér!
Annars er Emily Haines algert æði.
Veðrið hérna er annars búið að vera frekar íslandslegt. Frysti yfirnótt nokkrum sinnum fyrir viku, annars er búið að vera vindur og rigning! Jafnvel svo mikið að einstaka sinnum jaðrar það við að vera rok! Mér finnst það æðislegt. Allir aðrir auðvitað í sjokki yfir hversu hræðilegt veðrið er, ferjuferðum er frestað og rafmagnið fer af. En það er víst verra á öðrum stöðum þar sem tré rifna upp með rótum og það flæðir inn í kjallara... mér finnst það samt vera ósköp veimiltítulegt. En það er bara ég.
Núna þarf ég að læra... þarf að fara í skólann á eftir! Í fyrsta skipti frá því á föstudaginn! Reading break er næstum búið, helmingurinn af kúrsunum mínum gaf okkur frí alla vikuna en hinn helmingurinn vill hafa tíma í dag og á morgun, svo ætli ég verði ekki að láta sjá mig. Svo er kóræfing í kvöld, því við höldum þessa frábæru tónleika á laugardaginn. Allir að láta sjá sig, ég lofa skemmtun!
Hallo hallo hallo halloween...Sólveig Rós Másdóttir
Eins og maðurinn (Lupen Crook) sagði.Hrekkjavaka á þriðjudaginn!! Nágrannarnir með stóran uppblásinn draug í garðinum og köngulóarvefir og grasker út um allan bæ. Hefði getað farið á Halloween djamm í gær en geri það frekar á þriðjudaginn, í staðinn dunduðum við Dani og Krystee okkur við að skera út grasker! Það var ótrúlega gaman, graskerið mitt er núna með andlit af litlum sætum púka, Dani gerði uglu og Krystee könguló. Það eru nefnilega til svona rosalega sniðugir pumpkin carving kits í búðinni okkar og stór falleg grasker á aðeins tvo dollara! Kannski ég geri meira á morgun...
... því núna ætti ég að vera að læra :( Hagfræðipróf á morgun og ég er svo innilega ekki undirbúin. Ekki gott plan, þar sem mér gekk mjög illa á því fyrsta og ætlaði svoleiðis að eyða heilli viku í að læra fyrir þetta próf, en það var annað próf á föstudaginn og sagan fer eftir því. Og að sjálfsögðu notaði ég tækifærið til að forðast lærdóm og á núna tandurhreint eldhús, baðherbergi og svefnherbergi...
Þetta próf þýðir aftur á móti að ég fór ekki að sjá Screaming Masterpiece með Íslendingafélaginu í Victoria á föstudagskvöldið, og ekki heldur á Pride UVic kaffihús þó ég væri hálf búin að lofa nýrri vinkonu minni að fara með hana þangað (geri það næst í staðinn) og ekki heldur á míní tónleika í gær hjá vini mínum, og sendi kærustuna eina með Sarah og Fletcher á slagsmálaæfingu með SCA, sem er einhver miðaldaklúbbur þau tvö eru á fullu í. Ég fór reyndar með þeim fyrir viku síðan, klædd upp eins og norsk hefðarmær frá tíundu öld að horfa á fólk berjast... það var rosalega gaman ;) Enda var kærastan svo hrifin að núna ætlar hún að læra líka. Af hverju þarf allt að gerast á sama tíma og akkúrat þegar ég þarf að læra?? Ég bara spyr.
Speaking of which... hagfræðin kallar! Í öðrum fréttum fékk ég þá skyndilegu hugdettu að breyta minornum mínum. Það er örugglega ekki góð hugmynd, ef ég vil útskrifast á skikkanlegum tíma og mun núna taka við tími mikilla pælinga og skipulagningar og óákveðni og óöryggis... Svona er að vera skólahóra og vilja læra allt. Ekki auðvelt líf, skal ég segja ykkur. Nú fer ég að læra. Eða í sturtu. Eða að taka til. Við sjáum til ;)
Ég hef gaman af því að tala (did you notice?)Sólveig Rós Másdóttir
Ég er ótrúlega afbrýðisöm akkúrat núna. Airwaves að byrja á Íslandi og ég er ekki þar!!! Ég hef eiginlega aldrei farið á Airwaves, sem mér finnst vera alveg hundfúlt. Það eru nefnilega svona margar massagóðar hljómsveitir að fara að spila. The Go! Team!!! Mig langar SVO að sjá þau life! Mates of State!! Mjög skemmtileg hljómsveit sem ég hlustaði helling á í sumar. Wolf Parade!!! M. góðir og Sally vinkona mín myndi drepa mig ef ég fengi að sjá þá. Og svo auðvitað Metric!!! Sem ég reyndar sá hérna í Victoria fyrir mánuði síðan... engu að síður örugglega sú hljómsveit sem ég hef hlustað á mest af öllu þetta árið. Og margt fleira sem ég man ekki eftir þessa stundina en myndi örugglega hafa ótrúlega gaman af að sjá. En maður fær víst ekki allt... en mæli ég eindregið með því að þeir sem hafa tækifæri á láti sjá sig og skemmti sér fyrir mig!Háskólaliðið mitt er núna efst í deildinni í field hockey, jei! Og kærastan er efst sem markmaður (veit samt ekki hvað það þýðir) jei! En fyrst þau unnu alla leiki um síðustu helgi verða þau hérna um næstu helgi í staðinn fyrir að fara til Vancouver jei! Fara aftur á móti til Vancouver í næstum viku rétt eftir það á nationals... krossum nú fingur og vonum að þær vinni. Eiga alveg hellings sjens á því, liðið hér og Vancouver liðið eru þau allra bestu. Og eftir sem áður, ég hef svosem engan áhuga á íþróttum en maður verður víst að sýna stuðning ;) Enda er field hockey það eina sem maður fær að heyra um daginn út og inn... En þá verður þetta sem betur fer loksins búið.
Ég var farin að hafa alvarlegar áhyggjur af því hvernig ég mun standa mig í hagfræði þessa önnina... hélt t.d. að ég myndi falla á fyrsta kaflaprófi en svo kom í ljós að einkunnin mín var akkúrat meðaltalið svo mér líður miklu betur. (Meðaltalið var bara 5.6, en það er annað mál!) En þar sem bara 2/3 kaflaprófanna gilda þá á ég ennþá sjens í að standa mig vel. Tók þessa líka svakalegu rassíu í hagfræði yfir helgina, fékk yfir 9 í einu verkefni og komst að því að þetta er ekkert mál! Svo nú er ég mun bjartsýnni og bara í ágætu hagfræðiskapi.
Það er baptista kirkja rétt hjá skólanum mínum sem er svosem ekki í frásögur færandi, nema þau hafa þann vana á öll þriðjudagskvöld að elda helling af mat og bjóða gestum og gangandi! Og þar sem það byrjar akkúrat þegar kóræfing er búin þá er hefð fyrir því að marsera þangað og gæða sér á góðgætunum. Svo í dag fékk ég svona líka ágætan ókeypis mat, sem var líka svona þrælgóður. Mun þetta vonandi verða fastur liður í dagskránni!
En svo verð ég að kvarta aðeins... hafið þið tekið eftir því að það er stundum eins og að eitthvað verði miklu verra eftir að það er búið að greina vandamálið? Ég er víst búin að vera með skakka hálsliði í mörg ár án þess að hafa vitað af því, og þegar ég hugsa til baka þá passar það alveg, en ég skellti því bara á vöðvabólgu og lét það ekkert trufla mig neitt sérstaklega mikið. Svo potaði sjúkraþjálfarinn og nuddarinn og það varð miklu betra en það entist ekki lengi... ég hlýt að hafa sofið eitthvað skakkt, því núna er ég svona hrikalega slæm :( get varla hreyft höfuðið og allar snöggar hreyfngar eru no-go. Af hverju gerist þetta núna en ekki fyrir löngu síðan?? Ég bara spyr. Á tíma hjá sjúkraþjálfara á föstudaginn, vonandi getur hún eitthvað lagað þetta ef það skánar ekki af sjálfu sér...
En núna get ég varla frestað því mikið lengur að lesa um stofnun Ísrael... ekki að ég vilji það endilega, langt síðan ég hef verið að læra um jafn áhugavert efni!
Blogg blogg bloggití bloggSólveig Rós Másdóttir
Mig vantar dugnað. Ef einhver á smá dugnað sem hann getur séð af endilega sendið hann hingað, ég þarf svo sannarlega á honum að halda.Byrjaði önnina rosa vel! Kom alltaf undirbúin í tíma o.sv.frv. (í fyrsta skipti ever!) en núna þarf maður að fara að skila einhverju og bleh... ég nenni ekki neinu nema hanga uppi í sófa að horfa á sjónvarpið. En women studies ritgerð bíður eftir mér og sama gildir um hagfræðiprófið á mánudaginn svo þetta gengur ekki lengur.
Gerðist svo fræg að loksins sjá field hockey leik áðan! Fyrir fáfróða er field hockey nokkurs konar samanblanda af fótbolta og íshokkí, semsagt spilað með 11 leikmönnum og tveimur mörkum eins og fótbolti, en með lítilli kúlu og 'sticks' eins og í íshokkí, og markverði með hjálm og hlífðarbúnað út um allt til að verða ekki stórslasaðir. Og field hockey er það sem kærastan eyðir öllum sínum tíma í, enda er hún aðalmarkvörður skólaliðsins (go Vikes!) og yngra landsliðsins. Að sjálfsögðu bara tímaspursmál hvenær hún kemst í eldra landsliðið ;) Samt frekar slappt af mér, við erum búnar að vera saman í rúma sjö mánuði og fyrst núna sé ég um hvað þetta allt saman snýst... en ég hef það þó mér til afsökunar að vanalega keppir hún einhversstaðar lengst í burtu. En tournament #2 af Canada West varsity season stendur núna yfir hérna í Victoria og að sjálfsögðu lét ég sjá mig. Verð að segja að mér finnst þetta ennþá frekar skrítin íþrótt... en það er alveg ótrúlegt að sjá hversu flinkar þessar stelpur eru með prikin sín, að hitta hver til annarrar á ótrúlegum hraða.
Og þær unnu, jei! Meira að segja University of Alberta sem að vann uh, kanadameistaratitilinn? Get varla sagt íslandsmeistaratitilinn... í fyrra. Alltaf gaman að halda með vinningsliðinu ;) En annar leikur á morgun og á sunnudaginn, svo keppt í Vancouver eftir nokkrar vikur (Þakkargjörðarhátíð um næstu helgi) og svo framvegis fram í lok nóvember, þegar þessi törn verður loksins búin.
Í öðrum fréttum... teiknibóla!! Það heitir teiknibóla!! Ég fékk einmitt svoleiðis lánað hjá íbúðarfélaga mínum fyrir nokkrum dögum en gat svo innilega ekki munað hvað það heitir á íslensku, mundi ekkert nema títuprjónn, en vissi samt að það er aðeins öðruvísi. Þangað til að orðið teiknibóla datt loksins niður í hausinn á mér í gær. Svona er maður orðinn ryðgaður í sínu eigin tungumáli...
And kicking through this cruel worldSólveig Rós Másdóttir
Ég féll í stærðfræði. En mér er alveg sama. Fékk 100% í fyrsta verkefninu án þess að hafa lesið kaflann, svo hef engar áhyggjur af þessum áfanga. Hagfræði er kökusneið ;)Fór til sjúkraþjálfara í gær. Er víst ekki bara með svæsna vöðvabólgu heldur líka TMJ, misháar axlir og hryggjar- og hálsliði sem eru snúnir hingað og þangað. Góðu fréttirnar eru að tryggingarnar hérna eru svo góðar að ég get fengið meðferð á spottprís og betri fréttirnar eru að það á að senda mig í nudd! Ég dýrka nudd. Og ekki nóg með það, heldur býr nuddstofan sem UVic sendir nemendur helst til vegna lágs verðs og góðra gæða yfir hvorki meira né minna en tveimur TMJ sérfræðingum! Svo ég ætti að vera í góðum höndum. Enda kominn tími til, er alveg komin með nóg af þessu rugli mínu.
Enn betri fréttir eru að ég er núna komin í UVic Prima kórinn!
Fyrsta æfing var í gær og mér líður strax miklu betur. Ég held ég sé háð tónlist, ef ég fæ ekki mitt drug of choice reglulega þjáist ég af fráhvarfseinkennum. Og prógramm haustsins er líka svona stórskemmtilegt - fyndin lög! "By the leeks of Babylon" þar sem einhver staðgengill verður fenginn til að gráta í þögnunum og voðalega falleg og róleg laglína fyrir "We will be right back after we go to the bathroom" og svo hlaupa allir út og hlé tekur við. Bestu fréttirnar af öllu eru þó að við ætlum að syngja Carmina Burana í vor!!! Ég tók þátt í því frábæra verki í DC með American University kórnum og það var hreint út sagt ein sú besta reynsla sem ég hef upplifað. Skrítnu fréttirnar eru þó að ég var sett í alt.
ALT. Ég sem hef alltaf verið sópran! Í þau 8 ár og þeim 5+ kórum sem ég hef verið í! Að vera sópran er hluti af mínum persónuleika! (Sérstaklega þegar maður tekur inn í spilið ríginn sem ríkir milli radda í Hamrahlíðakórnum... nei, bara grín) En ég held samt sem áður að þetta sé kannski bara ágætis þróun. Var annar sópran í DC og finnst svona rosalega gaman að prófa að vera ekki efsta rödd, það er svo gaman að radda. Allt öðruvísi upplifun. Og svo hef ég verið svo stíf undanfarið (sjá að ofan) og á í erfiðleikum með að ná efstu nótunum og sópraninn allur sem einn fer oft upp á g og a í lögunum sem við erum með... svo kannski er þetta bara ágætis þróun. Svo verð ég að líta á það sem hrós að kórstjórinn sagði að hann vantaði fólk sem kynni að lesa nótur í altinn og þess vegna vildi hann hafa mig þar 
Í fleiri mjög góðum fréttum er líka sú þrælskemmtilega staðreynd að hvorki meira né minna en þessa helgi er kórinn svo á leiðinni í lítið ferðalag til að hrista saman hópinn! Lau-sun mun ég semsagt eyða á Thetis Island sem er ein af eyjunum hérna milli Vancouver Island og meginlands BC og á víst að vera náttúruperla, allavega hafa nánast allir og ömmur þeirra líka farið þangað, og vinkona vinkonu minnar gifti sig þar í fyrra. Það ætti að vera gaman og ég hlakka heilmikið til. Miklar fréttir á einum degi - inntökupróf, alt, fyrsta æfing og upplýsingar um ferðina allt í gær. En ég er mjög mjög ánægð með þessa þróun. Sérstaklega þar sem kærastan verður hvort sem er í burtu þessa helgi, eins og margar þessa önnina, upptekin við að spila hockey í Calgary. Þar sem snjóar víst núna... Svo kvörtum við yfir veðrinu á Íslandi! Aftur á móti er haustið komið hingað. Kom í fyrradag. Semsagt, í síðustu viku var ennþá sumar. BC með besta veðrið, að sjálfsögðu!

En núna verð ég víst að hætta að eyða tíma og fara í staðinn að klára að læra og svo búa mér til nesti og koma mér í skólann!
The Man of Metropolis Steals Our HeartsSólveig Rós Másdóttir
Stundum dyrka eg Sufjan Stevens, stundum finnst mer hann asni. Hann er i nadinni tessa stundina. Eg var einnig mjog glod tegar mer tokst ad finna ut ad tad er einmitt Sarah McLachlan sem syngur med Delerium i teirra agaeta lagi Silence, eins og eg helt. Sko hvad eg er klar. (Eg veit ad tad veit enginn um hvad eg er ad tala, just humour me.)Bokasafnid i skolanum er tvi midur ekki med islenska stafi, aftur a moti eru tolvurnar herna komnar med Firefox! Ta gladdist eg mikid. To ad kaerastan reyni mikid ad sannfaera mig um ad IE se alls ekkert svo slaemt to vil eg halda i mina fordoma, takk fyrir.
Akkurat vika fra tvi ad skolinn byrjadi og eg verd ad segja ad aldrei hefur skoli hja mer byrjad jafn hratt. Eg er komin a fullu i laerdom sem vanalega gerist ekki fyrr en rett fyrir prof, eda allavega tegar vel er lidid a onnina! Og ekki bara to ad eg hafi sett mer tad markmid ad lesa fyrir timana nuna heldur er hvorki meira ne minna en prof hja mer a fimmtudaginn. Og ekki neitt venjulegt prof, heldur staerdfraediprof! Eg fekk nett sjokk tegar eg fekk taer frettir og upphofust dagar af kvida og svitakostum. Eda svona nokkurn veginn. Yfirlit yfir namsefnid hjalpadi ekki tar sem tad samanstod af deildun og svipudu sem eg hef ekki stundad sidan i menntaskola fordum daga og stod eg mig aldrei vel i tvi. Timinn i gaer letti to heilmikid a ahyggjum minum tar sem eg komst ad tvi ad eg kann tetta allt saman, tarf bara adeins ad rifja tad upp. Er tad ta astaedan fyrir tvi ad eg sit inni a bokasafni i stad tess ad vera uti i solinni og 20C hita ad lesa The No Nonsense Guide to Islam, sem a einmitt einnig ad vera buin fyrir fimmtudaginn. Eg er tvi herna i lettu nostalgiukasti ad leysa saman fyrsta stigs jofnur og hugsa aftur til stae103 og 303.
Tad litur ut fyrir ad eg se buin ad akveda ad taka minor i hagfraedi, annars myndi eg haetta samstundis i writing for economists, sem litur ut fyrir ad vera einstaklega leidinlegur afangi og buinn til fyrir folk sem annadhvort talar ekki ensku eda fell i fyrsta ars ensku. Eda kannski er eg bara fordomafull tar sem eg gaeti laert heilmikid i honum. Adrir kursar eru m. spennandi, ta serstaklega Politics of the Middle East sem er svaedi sem eg hef algerlega hunsad i menntun minni hingad til, og Old Norse Gods and Heroes i Medieval Studies tar sem kennarinn a islenskan afa og ommu og gengur um med tosku ur Borgarbokasafni Reykjavikur en ber samt allt fram svo ad eg skil ekki ord af tvi sem a ad vera islenska. Tad verdur gaman ad sja hvernig tessi kurs verdur. Introduction to Women's Studies er lika svona traelmerkilegur, og vonandi verdur Intermediate Microeconomics ekki of snuinn.
Komst ad tvi ad kaerastan er lika svona traelgodur kokkur og eru plon kvoldsins ad lata hana elda fyrir mig aftur, ta fjorda skiptid a innan vid viku, og klara ad horfa a The Fifth Element, svona til ad taka sma pasu adur en haldid verdur afram med Grey`s Anatomy season 2, in diskarnir koma einmitt ut i dag! Og munu ibudarfelagarnir hiklaust fjarfesta i teim. Ta get eg kannski fengid hatalarana mina aftur til ad gegna sinu upphaflega hlutverki, sem er ad spila tonlist fyrir mig frekar sjonvarpstaetti i gegnum tolvuna tar sem okkur hefur ekki tekist ad tengja hljodid vid sjonvarpid.
A allt odrum notum verd eg adeins ad minnast a hana Bebbu sem for med mer til Chile fyrir ari og old sidan, nanar tiltekid 1998. Hun er jafngomul mer, t.e. 22 ara, og hun og kaerastinn hennar voru ad missa barn ur hraedilegum veikindum. Eg hef fylgst med tessari fjolskyldu herna fra tvi i sumar og fatt hefur fengid jafn mikid a mig. Innilegustu samudaroskir til teirra :(
Sólveig Rós Másdóttir
Eins og svo oft áður kemur upp viss bylgja af efasemdum um tilgang þess að halda úti svona einu stykki bloggsíðu þegar maður fær lítil sem engin verðlaun frá umheiminum - s.s. komment. Eða skilaboð, á aðeins betri íslensku. Þeim efasemdarloftbólum er hinsvegar snöggt drekkt með skynsemi, þar sem ekki er tilgangurinn að sækjast eftir athygli frá öðrum manneskjum, heldur að hafa vettvang til að deila með öðrum hugsunum um tilgang lífsins og þess daglega amstur, og svo er það annarra að velja hvort þeir taki nokkrar mínútur úr degi sínum til að lesa yfir fyrrnefnda pistla, án þess að á þeim sé nokkur pressa að staðfesta komu sína. Ekki rétt?Í dag er sunnudagur. Á morgun er Labour Day, ekki að frídagurinn skipti mig miklu máli þar sem ég er búin að vera í stanslausu fríi hvort sem er, en það þýðir að styttist í að skólinn byrji, sem er á miðvikudaginn. Á þriðjudaginn kemur kærastan heim frá að keppa í New York þar sem hún sá ekki Wicked því það var uppselt en fór á Lion King í staðinn. Cue jealousy. Mig langar á bæði, og myndi svoleiðis drepa fyrir að sjá Wicked. Þó það sé auðvitað ekki eins þar sem bæði Kristin Chenoweth og Idina Menzel hafa fært sig áfram, á mjög góðri íslensku. Í gær var laugardagur og var honum eytt í ferjuferð til Vancouver þar sem við villtumst aðeins en fundum á endanum Ikea! Þar kom visakortið í góðar þarfir. Ég á núna forláta skrifborðsstól (Bonny), agalega smekklegan lampa (Kapela), þessa fínustu bókahillu á aðeins $35 þar sem á henni var rispa þó mér hafi ekki enn tekist að finna hana (Billy), agalega fallegt bleikt rúmteppi og gasalega kósí hvítt, bleikt og grænt og fjólublátt flísteppi. Það stendur til að mála herbergið mitt grænt og rjómalitað en þangað til verður það víst að vera bleikt og blátt. Ég ætti víst að fá grænar bólur af öllu þessu stelpuþema en mér er bara nokk sama. Reikna fastlega með því að kærastan muni flýja þegar hún sér þetta... en þetta er mitt herbergi og hananú sagði hænan.
Annars hef ég eytt undanfarinni einni og hálfri viku í að horfa á sjónvarpið, fyrst og fremst. Vorum að klára seríu eitt af Veronica Mars (í annað skiptið), er að horfa aftur á seríu eitt af Grey's Anatomy þar sem Sarah (minn nýji æðislega skemmtilegi herbergisfélagi) hafði aldrei séð það og svo hef ég séð hluta af Buffy seríu 7 svona þegar það er í gangi þegar ég á til að labba fram hjá. Annars hef ég aldrei horft á Buffy. Fyrir utan það hef ég verið að uppgvötva Victoria á hjóli og komast að því að ég virkilega verð að fá mér mitt eigið hjól og að það er slatti af brekkum hérna, og að sóla mig á ströndinni. Það er þessi ææææææðislega litla sæta strönd 10mín labb frá skólanum mínum. Og þar sem hitinn er búinn að vera milli 20 og 30°C... þá er mín bara að ná sér í sólbrúnku. Svo er ég að fara á tónleika með einni af uppáhaldshljómsveitinni minni í kvöld!! Metric, here I come! Annars er ég búin að vera að hlusta á The Go! Team, sem eru svona þrælgóð.
En skyldan kallar! Ég þarf að fara að horfa á Veronica Mars, season 2.
