Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Teljari

Könnun

Veist þú hvar Calgary er?

Tenglar

Gagnasafn

teljari 2





Busy days...Sólveig Rós Másdóttir





ví!Sólveig Rós Másdóttir

Og þá ætlar Sólveig litla að fara að gifta sig.

BrosandiBrosandiBrosandiBrosandiBrosandi

ég dýrka youtubeSólveig Rós Másdóttir

A B C D...Sólveig Rós Másdóttir

Ég hef lengi pælt í því hvort ég sé A eða B manneskja. Sem krakki og unglingur var ég sannfærð um að ég væri A manneskja (eins og ég var líka sannfærð um að ég væri óhemju greind, óhemju dugleg, ótrúlega heilbrigð, alltaf á réttum tíma og ætti örugglega eftir að verða forseti... eða allavega brilljant tónskáld) en síðustu ár hafa kennt mér mig um að sú sannfæring er óskhyggja. Ég er allavega ekkert sérstaklega stundvís, og kem aldrei neinu í verk. En málið er að ég er alveg hræðileg í að vera B manneskja líka. Laugardeginum var t.d. eytt í að sofa frameftir, horfa á dvd, borða góðan mat og spila Mario Bros 3 í góðrar kærustu hópi, en engu að síður var ég langt frá því að vera sátt þó það séu margar vikur í að ég þurfi að skila ritgerð. Þessi óróleiki lét ekki staðar numið fyrr en ég loksins gaf eftir og þreif eldhúsið (þó það sé ekki einu sinni mitt eldhús). Eftir það leið mér miklu betur.

Svo las ég stjörnuspána mína á emm bé ell punktur is.

Hrútur: Nú er góður tími til að leggjast í leti. En þú hefur rödd A-manneskju innan í þér sem mun mótmæla hugmyndinni að fá sér snakk og horfa á sjónvarpið, einsog það ætti á hættu að verið numið á brott á hverri mínútu.

Þarna er svarið komið! Ég er B manneskja sem vill vera A manneskja, eða kannski er ég A manneskja sem er of löt til að vera alvöru A manneskja. Eða ég er B manneskja með rödd A manneskju föst inni í mér (kannski er ég geðklofa?).

Ég er semsagt AB manneskja. Eins og AB mjólk. Eða jafnvel bara C... Engu að síður hef ég ákveðið að hlusta héreftir á bæði A og B raddirnar. Núna til dæmis vill A röddin endilega að ég taki til í herberginu mínu sem ég er búin að fresta í allan dag, þó það ætti ekki að taka meira en 10 mínútur.

Samt aðeins meira blogg fyrst. Á föstudaginn síðasta fór ég á fyrsta fund hjá Young Icelanders of Victoria! Sirka tíu manns komu og voru flestir 50-15% íslenskir, fyrir utan mig sem er 100%. Ein þeirra hafði meira að segja komið til Íslands með Snorra prógramminu og var einstaklega dugleg ad tjá sig á hinu ástkæra ylhýra! Við hlustuðum á Sigur Rós en það kom mér mest á óvart hversu lítið flest þeirra vita um föðurlandið. Sumir að sjálfsögðu meira en aðrir, og ég er ekkert að búast við því að þau kunni sögu Íslands frá 770 utanað, en það voru þónokkrir sem vissu ekki einu sinni hvernig nöfnin virka þar á landi... og fannst mér það mjög áhugavert. Sem og allar uppskriftirnar og siðirnir sem tilheyra vestur-Íslendingum. Ég hafði til dæmis aldrei heyrt um neitt af íslenska matnum sem mér var boðinn þar. Hápunktur kvöldsins var þó tvíræðislaust þegar ég las upp íslenska stafrófið fyrir viðstadda. Svo við erum komin í hring og kemur hér aftur tenging við bæði upphaf þessa bloggs og fyrirsögnina: A B C D eða eins og á góðri íslensku, A Á B D Ð E É. Kannski er ég Á manneskja!

The sunshine stateSólveig Rós Másdóttir

Sólveig er ekki í góðu skapi í dag. Fyrst og fremst vegna þess að í staðinn fyrir að eyða gærdeginum í að læra fyri rprófip sem byrjar eftir rétt rúma þrjá tíma þá var stærstum hluta dagsins eytt fyrir framan tölvuskjá að reyna að finna og panta flug, og vera oftar en ekki hafnað vegna þess að annaðhvort hafa of langt nafn, eða hafa heimilisfang á Íslandi. Ljótu kreditkort.

En það hófst, eftir mikið pirr og vesen, svo ég, kærastan og familían erum á leiðinni til Flórída eftir rúma viku!!! Svo atli vonda skapið mitt verði ekki að bíða betri tíma, allavega þegar ég verð búin í þessu prófi...

Sólveig húsmóðirSólveig Rós Másdóttir

Ég ákvað að nýta mér tækifærið þegar enginn annar var heima og taka aðeins til í húsinu.

12 tímum síðar er það orðið miklu hreinna.

Nokkrir linkar...Sólveig Rós Másdóttir

Bambi og Thumper! Ekkert smá sætt.

Á aðeins alvarlegri nótum... Baghdad Burning. Þetta er blogg frá Írak eftir konu sem kallar sig Riverbend sem ég er búin að vera að lesa undanfarið. Fyrsta árið var gefið út í bók sem ég skrifaði ritgerð um í skólanum á síðustu önn og ég mæli með fyrir alla. Ótrúlega áhrifaríkt að heyra hvað fólkið í Írak hefur að segja, sama hvaða pólitík maður hefur.

Komin heim til Victoria þar sem veðrið er eins og í apríl frekar en janúar, skólinn byrjaður aftur og allt að falla í sama horfið. Aðalbreytingin er að ég er orðin að prjónavél og hlusta á soundtrackið úr Happy Feet af miklum móð.

Sólveig Rós Másdóttir

Mér finnst alltaf jafn skrítið að jólin séu bara einn dagur hérna. Stöðin sem spilaði bara jólalög í margar vikur fram að jólum var búin að skipta algerlega yfir í 'lite rock' 26 des! Sem betur fer er jólafríið mitt í góðum gír, og mun vera fram að nýári.

Ég er semsagt búin að eyða fyrstu jólunum með tengdafjölskyldunni! Ótrúlega er þetta fólk gjafmilt. Ég vissi að ég átti von á einhverju í jólagjöf héðan, svo ég gaf til baka tvær bækur (valdar af kærustunni) en ég bjóst svo sannarlega ekki við fullum 'stocking' af súkkulaði og smádóti, $30 gjafakorti í bókabúð, stórri matreiðslubók, bók með myndum af Kanada, $70 miða á hockey leik og $100 gjafakort í matvörubúðinni minni! Ég er svo aldeilis hlessa. Og ekki nóg með það, heldur leiddi heimsókn til afa og ömmu (grandpa and meme) á jóladag til $20 gjafakorts á kaffihús þar að auki. Jeminn eini. Svo gaf kærastan mér Happy Feet náttföt frá La Senza og Veronica Mars seríu 2! Og get ég þá prísað mig sæla með það. (Sérstaklega eftir að það tók mig margar vikur af væli til að fá hana til að fallast á að gefa mér jólagjöf in ðe först pleis...)

Annars er sagan af pakkanum að heiman aðeins lengri og flóknari... sko, mamma ákvað að gefa mér jólagjöf og sendi hana í pósti til Victoria þar sem ég bý mestan hluta ársins, en hann var ekki kominn áður en ég flaug til Calgary. Svo að mamma ákvað að senda annan minni pakka hingað, og setti mitt nafn og heimilisfangið hér á hann. Átti það að taka 1-3 daga. Svo leið og beið og enginn pakki birtist, þangað til á endanum (eða aðfangadegi, sama hvað ég á að kalla það) fékk ég númerið á pakkanum og athugaði stöðuna. Kom í ljós að það var komið með hann hingað tveimur dögum áður, en tengdasystirin nýja þekkti ekki nafnið mitt og sendi hann í burtu (!). Og hananú. Við reyndum að hringja í 24/7 North American númerið í nokkra daga en enginn svaraði, svo fundum við á netinu eitthvað heimilisfang og keyrðum lengst út í afturenda til þess eins að finna pínulitla lokaða skrifstofu þar sem ekkert var. Ekki fyrr en í gær svaraði loksins einhver í símann og gaf okkur alvöru heimilisfangið, og fékk ég loksins pakkann minn! Var þá gleði í borg. Greyið Madeleine skammaðist sín pínu en ég get ekki verið fúl út í hana, ekki furða að skrítna nafnið mitt komi fólki í opna skjöldu...

Calgary er köld og steinflöt. En fyrir tveimur dögum fékk ég að upplifa the ultimate canadian experience! Já, mér var boðið á hockey leik! Flames vs. Canucks, eða Calgary á móti Vancouver. Hockey er aðal málið í Kanda, ef það er einhver sem vissi það ekki. The Saddledome var nánst fullt, og meirihluti gesta var í Flames búnaði einhverskonar. Mér var hennt í eldrauðan bol, svo ég skæri mig ekki út úr (sem er auðvitað alveg bannað). Þetta var svaka upplifun. Fyrir utan hockey leikinn sjálfan (sem mér er svosem nokk sama um en ekki segja neinum...) þá byrjaði húllumhæið á að lögreglan og RCMP (Royal Canadian Mounted Police... hvað er þetta kallað á íslensku?) gekk heiðursvörð inn á svellið og svo stóðu allir upp á meðan að þjóðsöngurinn var sunginn af söngkonu dagsins. Jeminn eini. Ég vissi að svona væri gert á landsleikjum og lokaleikjum í stórum keppnum, en greinilega bara í langflestum! Og margt margt fleira.

Ég hlakka nú pínu til að komast aftur 'heim' til Victoria, en það er svooo næs að geta horft á dvd langt fram á nótt og sofið út alla daga... en aftur í skólann 3 jan og ekkert vesen!

tveimur vikum sidar...Sólveig Rós Másdóttir

Mer hefur alltaf fundist 21 des vera spes dagur. Stysti dagur arsins! (Eg hef mjog gaman af svona spes timasetningum, eins og 11:11.11 11 nov...) Tad er samt bara ekki tad sama tegar dagarnir eru frekar langir hvort sem er. Eda nei, ekki mjog langir, tad byrjar ad dimma um 3-4 leytid a daginn og er rett ordid bjart um 8 a morgnanna...

Annars ta er eg buin i profum!!!!! Gledur tad mig mjog mikid. Klaradi klukkan 9 um kvold a manudagskveldi, flaug svo klukkan 9 um morgun a tridjudagsmorgni til Calgary tar sem eg er nuna og verd tangad til a naesta ari med kaerustunni og fjolskyldunni hennar. Samt bara tvo daga af naesta ari. Herna er allt odru visi en i Victoria, enda komin inn a meginland Kanada og hinumegin vid Klettafjollin. Herna er alvoru vetur! Ekkert graent gras eins og i Victoria.  Ekkert rosalega kalt nuna, bara um frostmark, en grasid er gratt og gult eins og heima og grar snjor her og tar. Allt gratt, og rosalega FLATT. Alveg otrulega flatt. Eg hef ekki sed mikid af borginni eda umhverfis enn sem komid er (tad er allt a planinu!) en tad er tad sem slaer mig fyrst og fremst hversu hrikalega flatt allt er. Ad tvi leytinu er Victoria to allavega lik Reykjavik.


Eg held tad hafi eiginlega gengid eins vel og mer gat gengid i lokaprofinu i hagfraedi, allavega mun betur en i nokkru af profunum a onninni. Eg kludradi samt einni storri spurningu. Nuna er bara ad bida og sja hvernig ollum hinum gengur, og hvort kennarinn mun ta 'curve' einkunnirnar... eg verd nu eiginlega bara ad vonast eftir tvi! Annars get eg nu varla kvartad... buin ad fa trjar einkunnir til baka og taer voru A-, A og A+!! Er traelanaegd med tad. En audvitad eru tad lettu afangarnir sem eg vissi ad mer myndi ganga vel i. Tveir erfidu eru teir sem eru eftir :/


En nuna er eg ad fara ut... Vona ad allir skemmti ser i jolaundirbuningnum! Eg mun reyna ad blogga eitthvad meira... Kvedjur fra Calgary!

Jólin koma, jólin koma... einhvern tímann vonandi!Sólveig Rós Másdóttir

Heyrnatólin mín hættu að virka fyrir um það bil klukkutíma. Er ég ekki sátt. Alveg ótrúlega stuttur líftími sem þau hafa, blessuð greyin...

Ég var að skila fyrsta heimaprófinu mínu! Það var mjög gaman. Hafði meira að segja hálftíma aukalega! Er svona hrikalega stolt af sjálfri mér. Við skulum samt ekkert vera að fara út í smáatriði á því að ég eigi að skila öðru heimaprófi á morgun, tvöföldu í lengd sem þarnast sirka 20 sinnum meiri lestrar sem ég hef ekki gert... og að ég er að fara í próf í kvöld. Neinei, þurfum ekkert að vera að velta okkur upp úr því.

Í fréttum er þetta helst annars að ég kláraði fjórar ritgerðir á um það bil einni viku, í síðustu viku. Sú fyrsta og lengsta tók mig allt of langan tíma, sú næsta ekkert svo mikinn en var samt degi of sein svo ég lækkaði frá A- niður í B+ :( Sú þriðja var asnaleg og tók mig allan fimmtudaginn, þó ég hefði verið löngu byrjuð, en er samt eiginlega stoltust af að hafa byrjað á og klárað 2000 orða ritgerð á föstudagsmorgni.

Eftir það þurfti ég að hjálpa kærustunni að flytja, semsagt bera fullt af þungum boxum, og eftir það var ég gersamlega búin. Og hef nokkurn vegin verið sofandi síðan þá. Sem er ekki gott ef við rifjum upp fyrri part þessa pósts, sem segir að á að skila heimaprófi í dag og öðru á morgun...
Síða 5 af 7