solveigros.bloggar.is
commuting og hagfræðiSólveig Rós Másdóttir
Í borgarskipulagshagfræðikúrsinum mínum lærðum við meðal annars um módel sem hægt er að nota til að tala um hversu margir ættu að búa í einhverri borg. Þar sem þetta var byrjendakúrs notuðum við engar tölur heldur var módelið eiginlega bara öfugt u og mældi á öðrum ásnum hversu margir eru í borginni, og á hinum hversu mikið "utility" hver íbúi í borginni fékk af því að búa þar. Fyrst bætir hver nýr sem flytur til borgarinnar utility, því stærri bæir og borgir hafa oft meira í boði fyrir íbúana, en eftir ákveðinn punkt er kostnaðurinn af nýjum íbúa meiri en maður græðir, því að hver íbúi í viðbót tekur upp pláss á götunum og lætur borgina þurfa að teygja sig lengra og lengra.Þetta er kannski ekki svo merkilegt... og örugglega hundleiðinlegt fyrir suma... en það sem ég er að pæla í að hérna í Calgary þá gjörsamlega sé ég þetta módel in action. Calgary er núna orðin milljón manna borg og stækkar mjööög hratt. Hún er að teygja sig eins og henni sé borgað fyrir í mismunandi áttir, en samt eiginlega bara norður og suður þar sem það er vatn til vesturs og ég held indjánareserve til austurs. Umferðin er alveg ótrúleg á háannatíma og það er allt fullt af fólki, sérstaklega bílum, þar sem allir í Alberta eiga bíl. Enda er þetta heimabær kanadísku olíunnar... þó að bensín sé orðið rándýrt hérna eins og annars staðar.
Það nefnilega tekur mig klukkutíma að komast í vinnuna. Ég bý í svona miðjunni á suðvesturhluta borgarinnar, og vinnan mín er sirka jafn langt frá miðbænum, bara í norður. Ég er svo heppin að búa frekar nálægt lestarstöð sem fer beint héðan (eða 15mín göngu héðan) og á hinn staðinn. Í gær ætlaði ég samt að stytta mér leið, og í fór af lestinni niðri í bæ og ætlaði í staðinn að taka strætó sem stoppaði þar og keyrði svo beint upp að dyrum til mín. En nei, ég endaði með að eyða næstum klukkutíma í þessum strætó. Það semsagt tók mig einn og hálfan klukkutíma að komast heim, þar sem hann var fastur í umferð alveg endalaust. Ég semsagt fór að heiman klukkan 7:50 og var komin heim aftur klukkan 6:25. Og auðvitað var alveg frábært veður í gær (25°c!) sem ég missti nánast algjörlega af.
En vonandi helst veðrið þar sem núna er þriggja daga helgi! Þ.e.a.s. eftir þennan vinnudag... ég held ég haldi mig í lestinni í dag. Hún festist ekki í umferð.
Þabaraþona...Sólveig Rós Másdóttir
Ég semsagt flutti í fyrradag til Calgary... þar sem var bæði 20°C hiti og snjór í görðum. Frekar skritið. Svo fór snjórinn en á víst að snjóa aftur á morgun. Það er allt grátt og brúnt... minnir mig bara á Ísland, þar sem Victoria er eiginlega bara grænni á veturna heldur en á sumrin, með grænt gras allt árið um kring nema í sumarþurrkum...En það dugir ekki að gista hjá tengdó að eilífu, svo við Dani fórum að leita okkur að íbúð. Og fundum alveg frábæra íbúð samdægurs! Ég bara á ekki orð. Tvö svefnherbergi og stór stofa, fullbúið eldhús með þvottavél og þurrkara, á aðalhæð í parhúsi þó það búi fólk fyrir neðan okkur... rétt hjá stærsta shopping malli borgarinnar, strætó og lest alveg rétt hjá, auðvelt að komast niður í bæ og líka í skólann sem ég ætla í í haust, og líka auðvelt fyrir Dani að komast í vinnuna! náttúrulega ekkert ódýrt, en samt alveg innan við það sem við vorum búin að ætla okkur. Og við megum meira að segja flytja inn á morgun! Við verðum samt örugglega að bíða þangað til við finnum leið til að koma stóru húsgögnunum þangað, svo það gæti dregist fram að helgi.
Dani fékk aftur vinnuna sína sem hún hefur unnið hérna síðastliðin ár þegar hún er ekki í skóla eða að spila einhversstaðar annarsstaðar, fékk meira að segja launahækkun og þau ætla að gefa henni stöðuhækkun eftir nokkra mánuði líka, og svo líklegast byrja að þjálfa hana sem manager eftir sirka hálft ár. Hún gæti ekki verið ánægðari, enda ekkert sem henni finnst skemmtilegra en að leika sér með nýjustu tækni og vísindi ;) Ég er annars að leita mér að vinnu... finn vonandi eitthvað fljótlega! Maður þarf nú að borga leigu...
all in all, gengur bara vel!
!!!!!!!!!!Sólveig Rós Másdóttir
Það var verið að breyta skilyrðunum fyrir post-graduation work permitið hérna í Kanada og ég er ÓTRÚLEGA GLÖÐ. Áður hafði maður 90 daga eftir að maður útskrifaðist til að finna vinnu sem maður gæti verið í til allt að tveggja ára, en starfið þurfti að "tengjast" gráðunni sem maður hafði verið að ná sér í, þannig að t.d. einhver með verkfræðigráðu má ekki fara að vinna á Starbucks. Ég hefði t.d. þurft að finna mér einhversskonar vinnu sem tengist stjórnmálafræði, og þurfti að vera "alvöru" vinna - semsagt eitthvað sem maður þarf háskólagráðu til að geta fengið. Og þó að ég voni að einhvern daginn muni ég vera í þannig vinnu þá var ég í algjöru stresskasti að hafa bara þrjá mánuði til að klifra upp stigann.Eeeeeeeeeen nei... núna er búið að breyta þessu. Núna er vinnuleyfið OPIÐ. Ég get semsagt unnið hvar sem er, og get skipt um vinnur eins og mér hentar, og það gildir í þrjú ár.
Ég þarf ekkert að stressast lengur! JABADABADÚ!!!


pé ess. Búin í prófum, gekk bara vel, fjórar einkunnir komnar so far, A-, A, A+ og A+, og býst sterklega við að síðasta verði A+. Ég myndi segja að ég væri pínu fúl yfir A mínusnum, þar sem ég hefði pottþétt átt að geta staðið mig betur þar, en ég held ég sleppi því bara. Svo kemur flutningabíll á morgun að sækja allt dótið mitt sem verður vonandi þá komið í kassa; Dani og ég fljúgum svo til Calgary á sunnudaginn eftir að horfa á ólympíuforkeppni í field hockey sem er hérna í Victoria um næstu helgi. Svo þarf ég bara að finna íbúð til að búa í og vinnu, annars erum við bara settar fyrir sumarið! En ég þarf ekki að stressa fyrir vinnuna lengur JEI!!!
I'm a lonely girl, so lonely girl... (pottþétt enginn veit hvaðan þetta er)Sólveig Rós Másdóttir
namminamminamm. Ég er búin að elda góðan mat tvisvar í dag, og geri aðrir betur. Annars get ég vonandi farið að borða venjulegan mat aftur fljótlega... ég reiknaði ekki alveg með að finna út viðkvæmni fyrir mat myndi taka tvo mánuði! Ég er samt byrjuð að borða hveiti sem skiptir rosalega miklu. Hef samt ekki borðað neinar mjólkurvörur eða sykur síðan um miðjan febrúar.Fyrsta prófið er á þriðjudaginn, þarf að skila ritgerð á fimmtudaginn, og annað próf á föstudag. Svo tvö próf vikuna eftir það, siðasta þann átjánda, svo ég sit hér sveitt að læra (nema þegar ég tek pásur og þvoi þvott, og elda mat, og fer út í frisbí, og tek til, etc etc..., ok, kannski er ég ekkert svo sveitt).
Annars er komin dagsetning á flutninginn! 23 apríl mun allt dótið mitt verða sett í vörubíl og það keyrt til Calgary, þar sem það mun líklega sitja í bílskúr ömmu og afa Dani þangað til að við verðum komnar með íbúð, sem gerist vonandi fyrsta maí. En þar sem ólympíuforkeppni í field hockey er hérna í Victoria 26 apríl þá höngum við kannski aðeins lengur... um að gera að sjá hvort Kanada kemst á ólympíuleikana! Verður skrítið að búa í tómri íbúð... en vonandi reddast það allt. Ég hef semsagt fimm daga til að pakka saman öllu dótinu mínu, þrífa íbúðina og gera allt í Victoria sem mig hefur alltaf langað að gera. Vonum að það verði nóg ;)
En núna er pásan mín búin...
hún á afmæli í dag....Sólveig Rós Másdóttir
ég er 24 í dag! JEI!jah bara eitthvað svonaSólveig Rós Másdóttir
Ætli maður eigi ekki að blogga, þó það sé svosem ekkert mikið í fréttum...ég komst í gegnum þrjár vikur án sykurs, kjöts, hveitis og öðru glúteninnihaldandi kornum, mjólkurvörum og soy... og er núna byrjuð að borða aðra hluti líka. Það er samt voða system á þessu, bara bæta einu við í einu og skrá niður hvernig mér líður... hingað til hef ég ekki fundið neitt. Enda bara rétt byrjuð. Orðin pínu pirruð á þessu, sérstaklega þegar ég get borðað nákvæmlega ekki neitt sem er selt í skólanum, og þarf þess vegna að pakka þessu svaka nesti á hverjum degi, en annars er þetta allt í lagi. Maður er bara jákvæður!
Skólinn gengur alveg ágætlega, það er rosalega þægilegt að vera ekki í ritgerðaráföngum!! Ég veit ekki af hverju ég fattaði þetta ekki fyrr... ritgerðirnar eru sko það sem nánast leggja mig á hverri önn. Miklu auðveldara að taka bara létta fyrsta árs kúrsa sem tekur mann svona tvo tíma að læra fyrir miðannarpróf og fá svo 100% fyrir... eða svona næstum.
Annars er það líklega helst í fréttum að ég flyt eftir rétt rúman mánuð!! Til Calgary, hvorki meira né minna. (Nú hvet ég alla til að fara á www.google.com og á maps og skrifa inn Calgary...) Þessi borg er semsagt lengst inni í landi, á mörkum Klettafjallanna og kanadísku sléttanna (prairies). Og þá mun ég loksins finna fyrir því hvernig það er að búa í "alvöru" Kanada... ekkert vesturstrandarvæl. Það fer reglulega niður í -35°C frost þar á veturna, og svo 35°C hiti á sumrin. Hér í Victoria hefur n.b. ekkert snjóað í allan vetur. Snjóað allt í kringum okkur, en ekkert hér! Þannig að ég er bara alveg komin úr æfingu við að búa þar sem er alvöru vetur. Núna eru sko kirsuberjatrén í blóma hér í Victoria og þau eru ekkert smá falleg! Ég hef farið í skólann á peysunni nokkrum sinnum og það eru voða falleg blóm út um allt.
Fyrst og fremst hlakka ég samt til að búa bara með Dani! Við ætlum að leigja okkur íbúð og ég hlakka svo til!!!! Er komin með alveg nóg af herbergisfélögum. Annaðhvort er eitthvað ókunnugt fólk í íbúðinni manns eða fólk sem kann ekki að taka til eftir sig. Ég á líklega eftir að fara yfirum í Ikea við að útbúa íbúðina... enda vantar okkur allt nema rúm, skrifborð og smá hillur. Eigum nóg af því, hinsvegar.
En nú nóg komið af bulli... ætli maður reyni ekki að læra eitthvað ;)
hei fadderí fadderallallaSólveig Rós Másdóttir
Ritgerðin sem ég skrifaði á nokkrum dögum endaði með að fá A og tilmælingu að ég sendi hana hingað ... þó ég held að kennarinn hafi sagt það við þónokkurn hluta bekkjarins. Mér finnst það samt skrítið - því mér finnst ritgerðin mín alls ekki vera það góð. Jú, hún er kannski allt í lagi, en heimildaleitin mín var mjööög sloppy, ég er ekki með alvöru thesis og arguments, og hún er eiginlega bara sett saman úr fullt af litlum bútum. Ég bjóst við kannski B+. En hvað um það... ég er ekki að kvarta ;) Bara finnst mjög ólíklegt að ég eigi eftir að vinna eitthver verðlaun, svo ég sé ekki tilganginn í að senda hana inn. Nema ég endurvinni ritgerðina, sem myndi taka allt of mikinn tíma.Ég ætti að vera í fríi í dag :( Eða sko, ég er í fríi, en ég átti að vera farin BURT í frí. Núna er semsagt reading break - fyrir tveimur árum fórum við Dani til San Fransisco, í fyrra fórum við til Flórída, en í ár höfðum við ekki (eða Dani... ekki) tíma til að fara eitthvað langt, svo við ætluðum bara að ferðast innan BC í nokkra daga. Sem urðu svo þrír dagar. Og svo tveir dagar... og svo datt algerlega upp fyrir. Við ætluðum að fara í morgun til Salt Spring Island sem á víst að vera frábær staður (þó aðeins betri á sumrin) en greyið litla Dani var að reyna að klára ritgerð eins og einhver vitleysingur og ekki búin að sofa í marga daga, so... ferðinni hefur verið frestað um ótilgreindan tíma. Þannig að núna hef ég heila viku til að gera ekki neitt. Mér á eftir að LEIÐAST svo. Ég gæti auðvitað lært... en það er leiðinlegt líka! Og allir vinir annaðhvort þegar farnir í ferðalag eða eru of uppteknir til að fara í ferðalag. Ég segi bara fussumsvei.
Eða jú... ég get notað þessa viku í eitt skemmtilegt... elda! Jamm, frá og með mánudeginum mun ég semsagt ekki borða neinar mjólkurvörur, ekki rautt kjöt, ekkert glúten (semsagt hveiti, bygg, hafra etc), engan sykur, engin egg, ekkert soy... semsagt, nánst bara hrísgrjón (helst brún), grænmeti og kjúkling í þrjár vikur. Þá verður meltingin í mér vonandi komin á gott skrið, og ef ég byrja þá að borða eitthvað sem maganum á mér líkar ekki við þá mun ég vita hvað það er! Jeeei. Ég er komin með alveg nóg af því að vera eitthvað slappleikisdýr sem verður óglatt af matnum sínum.
Þannig að núna verður deginum eytt í að sitja heima og horfa á dvd og prjóna. Og elda pönnukökur (svona á meðan ég get). Og kannski fara í labbitúr ef sólin kíkir í heimsókn!
I hope your children find your MySpaceSólveig Rós Másdóttir
Hí hí hí.
Pé ess. Það sem ég talaði um síðast? Ekki alveg að virka. Ég á að skila ritgerð á morgun sem er svo langt frá því að vera tilbúin að það er ekki einu sinni fyndið. Sem betur fer fékk ég frest fram á föstudag...
Personal growth and academic excellenceSólveig Rós Másdóttir
Svolítið mjög furðulegt kom fyrir mig í morgun.Ég fór í tvö próf, hvert á eftir öðru, annað í stærðfræði og hitt í hagfræði - og ég var tilbúin fyrir þau bæði.
Hvenær hefur þetta gerst áður?! Mér gengur oft mjög vel í prófum, og hef þarafleiðandi verið sæmilega undirbúin, en hef alltaf viljað lesa aðeins meira, glósa aðeins meira, fara yfir þetta einu sinni í viðbót, bara til að vera viss. Og svo auðvitað eru líka mörg próf þar sem ég er illa undirbúin og gæti pottþétt notað miklu meiri tíma. En ég vaknaði snemma í morgun til að hafa klukkutíma til að lesa yfir glósurnar mínar, en í staðinn fyrir að gera það þá eldaði ég mér hafragraut í morgunmat, og bara dúllaðist heima. Ég bara sá ekki tilganginn í að lesa meira.
Svo fór ég í prófin og kláraði þau bæði á svona 15-20 mín hvort (fengum klukkutíma). Og ég er ekki frá því að ég geti búist við 100% á þeim báðum.
Auðvitað skiptir það miklu máli að þetta enduðu með að vera mjög auðveld próf, og allavega hingað til eru báðir áfangarnir frekar auðveldir. En það skiptir ekki - ef þessi sama staða hefði komið upp fyrir nokkrum árum, þar sem ég vissi að ég þurfti bara að læra x mikið, þá hefði ég dregið það fram á síðustu stundu og ekki haft tíma til að klára, eða verið að lesa eins og vitleysingur þangað til að prófið byrjar. Og ekki sofið neitt í nótt. Og vanalega er þetta enn verra með ritgerðir, þær eru aldrei alveg tilbúnar og í hvert einasta skipti vildi ég að ég hefði aðeins meiri tíma til að betrumbæta. Svo ég er að koppípeista bibliographið fram á síðustu stundu og þarf að hlaupa móð og rauð frá prentaranum og þangað sem á að skila, og krossa fingurna og vona að ég hafi ekki skilið eftir neinstaðar "[enter argument here]".
Svo ég vil bara skála fyrir þessari þróun mála og vona að hún haldi áfram ;) Næst á dagskrá er að skrifa 10 bls ritgerð um Women and Raunch culture sem á að skila á fimmtudaginn... Þar kemur í ljóst hvort ég er í alvörunni búin að læra að skipuleggja mig! Enda kominn tími til, ég er að fara að útskrifast úr háskóla...

