Ađalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Teljari

Könnun

Veist ţú hvar Calgary er?

Tenglar

Gagnasafn

teljari 2





ég er bara ekki búin ađ blogga frá ţví í fyrra...Sólveig Rós Másdóttir

og nóg hefur víst gerst!

Ég kláraði skólann, kom heim í jólafrí, fór aftur út, stpopaði í New York í fyrsta skipti, komst að því að New York er rosalega grá, kom aftur heim, byrja að vinna á leikskóla á mánudaginn, fór í klippingu í gær og er rosalega sæt, og þetta sagði stjörnuspáin mín mér í dag:

Hrútur: Fólk kann að meta frásagnarhæfileika þína. Augnablik án asa er munaður í þínum augum. Kysstu minningar og dansaðu með öldunum.

Kysstu minningarnar og dansaðu með öldunum? Skilur einhver þetta?? Ekki ég...

winter wonderland og prófSólveig Rós Másdóttir

Þá er prófatörnin komin í gang... hingað til hefur mér tekist að hafa frekar háa meðaleinkunn í öllum kúrsunum mínum (88-95% sirka) og langar auðvitað að halda því í gegnum prófin... en það lítur ekki út fyrir að ég sé ENN búin að læra að skipuleggja mig almennilega. Annars lenti ég í því að sitja eitthvað asnalega í gær og endaði með svoleiðis bullandi vöðvabólgu að ég bara höndla varla að sitja við skrifborðið lengur... Ekki besta tímasetningin fyrir það! Annars veit ég ekki alveg af hverju ég er að reyna svona mikið að fá góðar einkunnir, þetta mun allt verða pass/fail þegar það kemur aftur inn í UVic! en það þarf jú að strjúka egóið.

Tvö próf og tvö heimapróf eftir, svo eftir rétt rúma viku mun ég stíga um borð í flugvél og fljúga heim. Ég hlakka ekkert smá til!!! Loksins fæ ég íslensk jól eftir alveg fjögur ár. Alveg kominn tími á það.

Það er kominn vetur hérna í Klettafjallalandi, og allt búið að vera þakið snjó í nokkra daga. Svo í kvöld breyttist hitastigið úr -8 í 6°C á bara nokkrum tímum! Svo allt er byrjað að bráðna. Við sjáum til hvað gerist.

Nokkrar myndir

snjóþakinn bíll

Bíllinn hennar Dani var þakinn snjó...

bakvið húsið mitt


Ég var sko að reyna að taka mynd af héra sem hoppaði þarna bakvið! En held það sjáist ekkert sérstaklega vel á þessari mynd, hann var of fljótur að hoppa í burt.



snæviþakin tré


Dani tók vitlausa beygju frá því að sækja mig í skólann svo við fengum smá útsýnistúr. Fallega snæviþakin tré í Mount Royal hverfinu í Calgary.

Elbow River Valley


Hérna sést yfir Elbow River sem rennur í gegnum Calgary. Ekki spyrja mig af hverju það heitir olnbogi... líklega út af því að hún beygist helling. Hin áin sem rennur í gegnum borgina heitir Bow. Ég á semsagt heima nálægt þessari á, rétt hjá Elbow Drive.

Ó klaki, ó klaki...Sólveig Rós Másdóttir

Ég verð semsagt heima um jólin! Fyrstu jól síðan 2004! Og er ekkert smá spennt! Og verð meira að segja í heilan mánuð! Alveg frá 18 des til 18 jan... þar sem maður þarf ekki að mæta í skólann í janúar þar sem ég verð BÚIN!!! loksiiiiiiinssss útskrifast maður... alveg kominn tími til!

Vil ekki tala um hvað flugið kostaði. Jiminn eini.

Og svo á leiðinni til baka þá bara stoppa ég í New York í nokkra daga að spóka mig... veit það verður skítkalt í janúar en mér er alveg sama, ég hef aldrei komið til þessarar borgar og finnst bara alveg kominn tími til. Og hananú!

þannig að ef einhver á sér ferð til New York sirka 18-21 janúar þá endilega látið mig vita svo við getum verið samflota! Annars bara dunda ég mér ein, finn örugglega eitthvað sniðugt í þessari borg ;)

Hlutir sem bögga migSólveig Rós Másdóttir

ekki í neinni ákveðinni röð

1. fólk sem hlustar á tónlist með heyrnartólum í strætó sem hefur hljóðið upp svo hátt að ég get heyrt vel í því 5 metra í burtu
2. bloggarar sem skilja sömu athugasemdina eftir á nánast öllum bloggunum um einhverja ákveðna frétt á mbl.is
3. þegar ég þarf að læra alveg helling fyrir þriðjudag, en geri samt nánast ekkert um helgina svo ég lendi í algjöru stressi á mánudeginum (en fer samt að blogga í staðinn fyrir að lesa)
4. þegar próftaflan er ekki ENNÞÁ komin svo ég get ekki pantað flug heim (á að koma í þessari viku...)

That will be all.

"I am not a terrorist!"Sólveig Rós Másdóttir

Ég get ekki sagt hversu rétt eða rangt Gordon Brown og Alistair Darling höfðu fyrir þegar þeir frystu eignir íslenskra banka í Englandi. Það mesta sem ég get séð er að flestir hafi klúðrað einhverju en þó er alltaf auðvelt að vera vitur eftirá. En það sem ég er komin með alveg upp í kok með er þetta hryðjuverkarugl.

Já, það er rétt að bresku lögin sem voru notuð til að fyrsta eignir bankanna voru hluti af anti-terrorism lagabálki, en aldrei kallaði neinn Íslendinga hryðjuverkamenn.

Auðvitað skil ég að það er auðvelt að mótmæla þessu, að það er gott að hafa blóraböggul, og það er gaman að dragast inn í þessa múgsefjun að hóta bretum öllu illu eða mótmæla þessu hryðjuverkamannanefni. En kommon.

Að setja myndir inn á heimasíðu af venjulegu íslensku fólki og segja að það líti ekki út eins og hryðjuverkamaður? Er bara helber rasismi. Því hvernig lítur hryðjuverkamaður út? Arabi? Með dökkt skinn? Veifandi kóraninum og hrópandi Allah?

Málið er það enginn lítur út eins og hryðjuverkamaður. Hryðjuverkamaður (eða kona) er sá sem framkvæmir hryðjuverk. Og núna veit ég að fólk mun taka andann á lofti, en Íslendingar gætu alveg framkvæmt hryðjuverk. Ég vona ekki, vonandi mun enginn nokkurn tímann aftur gera neitt svo hræðilegt, og það er alveg rétt að á mörgum stöðum í heiminum líta hryðjuverk út fyrir að vera mun vænlegri kostur til að ná einhverju fram heldur en á t.d. stöðum eins og Íslandi, en það breytir því ekki að þetta mál er nálgast á alveg fáránlegum forsendum.

Ég er mjög hrifin af mótmælum. Endilega mótmælið hvernig er búið að halda á málunum ef þið eruð ekki sátt við það, endilega segið þið Gordon Brown að þetta sé ekki ykkur að kenna, því auðvitað er algjört rugl að venjulegir Íslendingar lendi með margra milljarða skuldir vegna gjörða annarra, en í guðanna bænum - hættið að nota þennan hryðjuverkastimpil!!! Það skaðar engan nema sjálf okkur.

Og þetta er ástæðan fyrir því að ég mun ekki skrifa undir www.indefence.is.

kreppa!Sólveig Rós Másdóttir

Jiminn eini, maður hefur varla undan við að fylgjast með fréttum. Bara allt að fara á hausinn. Það er á svona tímum sem maður þakkar fyrir að hvorki eiga neitt, né skulda neitt að ráði ;) bara LÍN en það vonandi setur mann ekkert í gjaldþrot einn tveir og sjö, sérstaklega þar sem ég er enn í skóla...

ég semsagt mun alveg lifa þessa síðustu önn í skóla hérna úti af, er búin að borga skólagjöld og leigu fyrir hálfa önnina nú þegar með peningum að mestu leiti héðan, svo það er engin gengisskekkja á því. Svo er ég í hlutavinnu hérna (sem er allt í einu orðin rosalega vel borguð...) sem ætti að duga ágætlega þó svo ég þurfi að færa svosem einu sinni eða tvisvar peninga frá Íslandi á þessu hrikalega gengi.

Ef ég væri aftur á móti rétt að byrja eða bara hálfnuð í námi úti þar sem ég væri algjörlega háð íslenskum peningum þá væri ég í vondum málum, og líklega bara að lifa á núðlum eins og fleiri ;)

Vonum nú að þessi ríkisstjórn muni nota þessi nýju völd sem hún er búin að fá sér skynsamlega svo þessi stormur geti náð sér niður sem fyrst! Mikið rosalega er ég fegin að ég er ekki ráðherra eða á alþingi þessa stundina. Ég er nógu stressuð bara við að fylgjast með, og hagfræðin mín er ekki að hjálpa mér mikið.

darling I will stitch you, I will fit you in my heartSólveig Rós Másdóttir

Sia er nýja uppáhaldið mitt. Horfa!



Er byrjuð í skólanum... það er skrítið að vera bara í tímum tvo daga í viku. Og að vera bara í þremur kúrsum. Og að vera í tímum á sama stað og ég vann í sumarbúðum í sumar. En ég er samt ekki í fríi hina þrjá dagana... því ég fékk mér vinnu - á sama stað! Er að vinna í kaffiteríunni í skólanum sem sér um ekki bara kaffiteríuna sjálfa heldur líka allar litlu sjoppurnar, Starbucks, Jugo Juice, Tim Horton's... þetta er semsagt svaka batterí og vinn ég þar hina þrjá dagana. Svo er ég orðin tutor, semsagt hjálpa litlum krökkum með hagfræði og stærðfræði... og gettu hvað? Það gerist í skólanum líka! Og svo er líkamsræktin þar líka. Ég verð örugglega komin með alveg nóg af þessum skóla í Desember... en samt, þetta eru bara 6 mánuðir í heildina, ég var t.d. í MH í fjögur ár, svo ég er bara orðin dramatísk.

Ekki mikið annað að frétta... sumarið búið, haustið komið, og allt fullt af fallegum haustlitum. Svo er mér sagt að það fari að snjóa bráðum... ég er samt ekkert að bíða spennt, sumarið má alveg vera aðeins lengur.

Bið að heilsa klakanum!

College Kids rule!Sólveig Rós Másdóttir

Audvitad er besta sumar a Islandi i 60+ ar tegar eg er ekki tar...

... vedrid herna aftur a moti skiptist a milli 30 stiga hita og steikjandi sol, og haglels og trumuvedurs. Oft er allt of heitt til ad vera uti, eg nyt tess mikid ad vera i skugga... serstaklega tar sem eg verd ad vera i vinnubolnum tegar eg er i vinnunni sem mer verdur allt of heitt i, og tar sem eg er inni nanast allan daginn ta yrdi mer allt of kalt i stuttbuxum. Tetta er vandamal! En i dag er bara (bara...) 16 gradu hiti, sma rigning og skyjad. Akkurat tegar tad er Hawaii dagur i vinnunni og vid aetlum ad grilla nidur a "strond" eftir vinnu! (strond vid a, sko, buin til af monnum, en madur getur ekki kvartad.)

Um helgina for eg til Sylvan Lake, sem er rosalega fallegur stadur. Tengdo eiga sumarbustad alveg nidur vid vatnid, og i fyrra syntum vid i vatninu og forum a bat, en i ar vorum vid of stuff til ad na tvi. I stadinn forum vid i golf! Og var bara tonokkud gaman! Alveg til i ad profa tad aftur...

annars er ekki mikid ad fretta. Mjog gaman i vinnunni, er med 8-10 ara gamla krakka nuna og vid erum ad laera teiknimyndagerd, photoshop, heimasidugerd, bua til stuttmynd og tolvuleikjagerd... i naestu viku fae eg nyja krakka og vid munum mala, teikna, bua til vinabond og setja upp litid leikrit! Svo sidast fae eg 12-14 ara krakka og vid munum laera um liffraedi, edlis og efnafraedi, vistfraedi og dun dun dun... CSI! Med "alvoru" blodi og fingraforum og alles. Eg er ekkert sma spennt!

Long helgi um verslunarmannahelgina, to af odrum astaedum en vanalega, en eg efast um ad eg geti farid neitt langt tar sem kaerastan faer ekki fri a manudeginum, heldur i stadinn a midvikudeginum eda eitthvad alika faranlegt. Oh well, vid finnum okkur eitthvad snidugt ad gera!

áfram Ísland...Sólveig Rós Másdóttir

ég semsagt lenti í morgun. Líður svona smá eins og uppvakningi. Meira þegar ég þarf ekki að einbeita mér í að setja saman einfaldar setningar!

ekki komin með gamla gemsann ennþá, en ef einhver er til í að lána mér síma fyrir kortið mitt þá væri það mjög vel þegið.

Ég ætlaði að reyna að halda mér vakandi þangað til í kvöld en ég held ég verði bara að fara að líða út af. Endilega hafið samband ef þið viljið hitta mig! Er hérna fram til fjórða júlí... try the veal! 

Ţá er ţađ ákveđiđ!Sólveig Rós Másdóttir

Segja Kasper, Jesper og Jónatan.

Ég mun semsagt verða á landinu frá 24 júní til 4 júlí! Nú endilega keppast um að bóka smá tíma með mér ;)
Síđa 1 af 7